HOMEJOIN ICCHELPMEMBERS & ACTIVITIESCHESS.FMRESOURCESSTORE HOME JOIN ICC HELP MEMBERS & ACTIVITIES CHESS.FM RESOURCES STORE
menu

Right this minute there are 1984 members online, of whom 123 are grandmasters and other titled players.


up HOME

"ICC is one of the only entries in all subject areas to receive scores of 9 and 10 in all rating categories."
— WebGuide Magazine


Get a seven day FREE trial of ICC!

ICC News Item #1445

NEWS 1445 (10-Nov-00)Next Previous
Icelandic Net Championship on ICC November 12!


Íslandsmótið í netskák 2000
12. nóvember 2000, kl. 20:00.

Chessclub.com will host the first ever National Championship
held on the internet when it holds the Icelandic Net Chess
Championship on Sunday November 12 at 4pm (8pm Iceland time).
The tournament is open to Icelandic ICC members, but
we expect to have a number of titled players participating,
so come and watch!

Here are the rules for the 9-round tournament for Icelandic
ICC members:

Almennar upplýsingar:

Taflfélagið Hellir, Strik.is og ICC bjóða til
Íslandsmótsins í netskák sunnudaginn 12.nóvember kl 20:00.
Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad kerfi, 4 mínútna
skákir með 2. sek viðbót við hvern leik. Þetta er í fimmta
sinn sem mótið er haldið en núverandi Íslandsmeistari í
netskák er Davíð Kjartansson.

Boðið er upp á glæsileg verðlaun í boði Striks.is eða mjög
veglega farsíma.  Einnig bíður ICC upp á frímánuði fyrir
verðlaunahafa.    Einnig gefa BT-tölvur þeim sem hafna í 2.
sæti í öllum flokkum PC-leikinn Red Alert II

Mótið fer fram með sama hætti og undanfarin ár þ.e.
keppendur tefla undir dulnefnum og vita þeir því ekki hvort
andstæðingur þeirra er byrjandi eða stórmeistari!  Veitt
verða verðlaun fyrir þrjá flokka, opinn flokk, undir 1800
skákstigum og stigalausir.

Mótið verður að þessu sinni haldið á stærsta skákþjóni
heims, ICC.  Mótið er öllum opið hvort þeir eru félagar á
ICC eða ekki.  ICC mun bjóða sem ekki eru skráðir á ICC
frítt fyrsta mánuðinn!

Skylda verður að nota nýjasta Blitzin hugbúnaðinn (Blitzin
2.31) í mótinu en hann er með innbyggðan hugbúnað til að
útiloka að skákmenn noti sér tölvu til aðstoðar sem er
stranglega og kostar brottrekstur úr mótinu.  Hellir
áskilur sér jafnframt rétt til að útiloka viðkomandi frá
netskákmótum á vegum Hellis í framtíðinni.

Hugbúnaðinn má nálgast hér.  Jafnframt verður íslensk
útgáfa af Blitzin 2.31 tilbúinn fyrir mótið á sömu síðu.

Verðlaun:
Glæsileg verðlaun verða í boði Striks.is.  Allir þrír
Íslandsmeistarnir fá glæsilega farsíma í verðlaun.
Jafnframt fá þrír efstu keppendur í opnum flokki frímánuði
hjá ICC og Íslandsmeistarnir í hinum tveimur flokkunum.

Opinn flokkur:
1.verðlaun:  Ericsson-R380 (Verðgildi um kr. 70.000)
               + Sex mánuðir frítt á ICC
2.verðlaun:  Þrír mánuðir frítt á ICC
               + Red Alert II í boði BT-tölva.
3.verðlaun:  Tveir mánuðir frítt á ICC

Áhugamannaflokkur (undir 1800 stigum):
1.verðlaun:  Nokia-8210 (Verðgildi um kr. 45.000)
               + þrír mánuðir frítt á ICC
2.verðlaun:  Red Alert II í boði BT-tölva.

Byrjendaflokkur (stigalausir):
1.verðlaun:  Nokia-8210 (Verðgildi um kr. 45.000)
               + þrír mánuðir frítt á ICC.
2.verðlaun:  Red Alert II í boði BT-tölva.

Verði menn jafnir í efsta sæti einhvers flokkinn verður
teflt um titilinn.  Verði tveir efstir og jafnir verða
teflt tveggja skáka einvígi með sömu tímamörkum.  Verði enn
jafnt verður tefldur bráðabani.  Verði fleiri en tveir
jafnir verður tefld einföld umferð, verði enn jafnt, þá
bráðabani.

Um önnur verðlaun verður reiknuð monradstig.

Skráning:
Til að skrá sig þarf að fara inn á Skráningarsíðu ICC og
skrá sig þar.  Að því loknu skal senda tölvupóst til
John Fernandez hjá ICC og tilkynna þátttöku en senda skal bæði
inn raunverulegt nafn og dulnefnið sem valið var við
skráningu.  Hafi menn aðgang fyrir, er hægt að nota hann.
Til að mótið gangi sem best fyrir sig er mikilvægt að
gengið sé frá þessari skráningu sem fyrst!

Mikilvægt er að skrá sig inn á ICC eigi síðar en 19:45 og
skrá þá:  tell jfern Iceland og einnig að skrá: +chan 79

Lendi menn í erfiðleikum við skráningu eru eftirtaldir
tilbúnir til aðstoðar:

Nafn:               Tölvupóstur:              ICC-nafn
John Fernandez      jfernandez@chessclub.com  JFernandez
Gunnar Björnsson    gunnibj@simnet.is         vandradur
Kristján Eðvarðsson giggo@sanmskipti.is       giggo
Halldór Grétarsson  asb@ismennt.is            hge

Eftirlit:
ICC mun einnig yfirfara allar skákir mótsins til að kanna
hvort skákforrit hafi verið notað til aðstoðar, en ICC
býður upp á mun betri búnað en aðrir skákþjónar til að mæla
slíkt.  Sé niðurstaða ICC sú, að skákforrit hafi verið
notað verður viðkomandi keppandi dæmdur úr leik ogHellir
áskilur sér rétt til að útiloka viðkomandi frá netskákmótum
á vegum Hellis í framtíðinni.  Til að tryggja ennfremur að
allt fari eftir settum reglum þurfa allir skákmenn að nota
nýjustu útgáfu af Blitzin forritinu (Blitzin 2.31) sem
nálgast má hér (Íslensk útgáfa tilbúinn fyrir mót).

Dagskrá mótsins:
(Getur auðveldlega breyst!)
19:45 - 20:00 Allir keppendir verði komnir inn á ICC.
20:00 - 20:15 Skrá setningarnar:  tell jfern Iceland og +chan 79
20:15 - 20:30 1. umferð
20:30 - 20:45 2. umferð
20:45 - 21:00 3. umferð
21:00 - 21:30 4. umferð
21:30 - 21:45 5. umferð
21:45 - 22:00 6. umferð
22:00 - 22:15 Kaffihlé ef mótið er á áætlun!
22:15 - 22:30 7. umferð
22:30 - 22:45 8. umferð
22:45 - 23:00 9. umferð
23:00  Úrslit með raunverulegum nöfnum verða birt eins fljótt og mögulegt er!

Íslandsmeistarar í netskák:

Ár    Meistari            Fjöldi
1996  Þráinn Vigfússon    25
1997  Benedikt Jónasson   28
1998  Róbert Harðarson    31
1999  Davíð Kjartansson   31

Íslandsmeistarar í netskák (undir 1800 stigum):

Ár    Meistari
1996  Davíð Kjartansson
1997  Sverrir Unnarsson
1998  Hjörtur Daðason
1999  Ellert Berndsen

Íslandsmeistarar í netskák (stigalausir):

Ár    Meistari
1996  Þórður Harðarson
1997  Sigurgeir Höskuldsson
1998  Birgir Ævarsson
1999  Páll Sigurðsson

Next Previous

it ICC Weekly Newsletters

 

logo About Us | Contact Us | Privacy Policy | Terms of Service

© Copyright 1995-2010 Internet Chess Club, Inc. All Rights Reserved.